14.11.2006 00:07:07 / Kári

Bríet Barðadóttir

Er búinn að linka á nýja prinsessu, hana Bríeti sem Barði og Hulda eignuðust þan 26. október. Er þeim öllum óskað innilega til hamingju með jarðvistina og foreldrahlutverkið.

Af augljósum ástæðum er Bríet í tveimur tenglaflokkum :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 23:44:37 / Kári

Já nú ertu hissa...

Maður verður að standa við orð sín. Ég lauk síðustu færslu víst á orðunum ,,ætli heyrist ekki næst í mér eftir tvo til þrjá mánuði´´  og nú eru liðnir góðir þrír mánuðir. Ætli mér sé þá ekki óhætt að henda nokkrum orðum á blað/skjá :S

Ég datt inn á eigið blogg í gær og sá að 17 manns höfðu nennt að opna síðuna þann dag. Merkileg elja að nenna þessu, ekki myndin ég nenna því. En skitt með það. Hvað hefur gerst á þremur mánuðum?

Ekkert - Takk fyrir og góða nótt.  Nei nei, eitthvað hefur nú silast þó ekki hafi orðið drastískar breytingar á lífi mínu. Hendi hér því helsta.

  • Við Helgi urðum frá á hverfa komnir í 1900 metra hæð yfir sjávarmáli þegar við reyndum við Hvannadalshnjúk í lok Júlí. Ástæðan, hvort sem þið trúið því eða ekki: Við vorum ekki með sólgleraugu.dfdf
  • Þriðja árið í röð var haldið á Þjóðhátíð og ber þessi höfuð og herðar yfir hinar tvær sem þó voru snilld. 10 vitleysingar saman í íbúð, Daddi Djún, Gítar,  Geirfinnur, áfengi, sjóstakkur, týndir gemsar, ,,tónleikar´´ á flugvelli Vestmanneyja og ýmislegt annað misgáfuleg - Þarf eitthvað að rökstyðja þennan kokteil? :S
  • Ég er komin með GMB-gráðu. Frábær áfangi það. Fyrir þá sem ekki vita þá er GMB-gráða kennd við Gísla Martein Baldursson sem fann hana upp. Meira um þetta kannski síðar.
  • Byrjaði í byrjun September að þjálfa 5. flokk karla í handbolta hjá Víkingum. Búin að fara með þá á eitt mót fyrir norðan sem gekk skítþokkalega. Er algjörlega blautur á bak við eyrun í þessum efnum en þetta er bæði skemmtilegt og krefjandi. Meira upp þetta kannski síðar 
  • Þór hélt sér í fyrstu deild í fótboltanum. Ég var og er hoppandi kátur með það. Pottþétt meira um fótboltann síðar
  • Það styttist í HM í handbolta.... Vúúúúú...
  • Ef þú ert enn að lesa þessi leiðindi, megi Tuð blessa þig...

Ég var að fara í gegnum alveg fullt af myndum, tók hundruði mynda í Eyjum, á ættarmóti og hingað og þangað í sumar og mig langar að fá mér svona albúm á netinu eins og Helga Fríður og þúsundir annarra eru með en það er eitthvað helvítis bögg hér í vinnutölvunni, það er lokað á að ég geti sótt þessi forrit. Frekar fáranlegt. Ef einhver kann leið fram hjá þessu þá væru ráð vel fegin.

Að endingu vil ég óska Sjálfstæðismönnum í  Vestmannaeyinum og annars staðar á Suðurlandi til hamingjum með afburða dómgreind og skynsemi.  

AMEN


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 23:00:39 / Kári

Kvikyndið er á lífi.......

Daginn daginn, latatsti bloggari Íslands hér - Og þó, Helgi Stonefish er sennilega einni gráðu latari en ég.......... :)

 Hvernig stendur á þessu?  Ég skal ekki segja, Leti er sennilega fljótlegasta og þægilegasta lýsingin. Hef heldur aldrei komist almennilega upp á lagið með þetta bloggerí og svona hlé hafa verið fastur liður í mínu blogg-lífi

Ekki fór það svo að ég næði að klára lokaverkefnið í vor og þar með að útskrifast þannig að stefnan hefur verið sett á Október-útskriftina.  Það verður því vart hjá því komist að fara að huga að verkefninu fljótlega en ætli maður leyfi ekki Versló að líða hjá áður en sú gleði hefst.

Það sem af sumri hefur verið snilld og ber ekki að skilja bloggletina sem svo að ekkert sé að frétta. Ég tók þá ákvörðun í fyrra þegar ég fékk vaktatöflu frá helvíti og var að vinna meira og minna flestar helgar að í þeim skít myndi ég ekki lenda aftur og hef staðið við það. Nú vinn ég aðeins eina helgi í viku og ekki næturvaktir svo vinnuhelgin þarf ekki nauðsynlega að aftra manni frá félagslífinu. Af því sem ég er búinn að dunda við í sumar má nefna nokkrar ferðir til Akureyrar (Þar af þrjár ferðir til að horfa á Þór tapa fyrir KA), Sjósöng í Grímsey, brúðkaup Olla og Evu, Bubbatónleikana 06.06.06,  Ísland-Svíþjóð í Höllinni 17. júní sælla minninga, stutta ferð á Ólafsvík að horfa á fótbolta, ég drösslaðist loks upp á Þverfellshorn (Esju), snilldar göngu upp á Þverárfjall/hnjúk í Hörgárdal, Ættarmót á Hofsósi og fleira mætti eflast týna til.  Allavega er þetta allt annað líf eftir að ég fór að vinna á ,,eðlilegum´´ tíma og hætti þessu helgarvinnuveseni.

Hið ljúfa líf heldur svo áfram, næstu helgi er stefnan sett á Hvannadalshnjúk og hef ég leigt Helga Stonefish sem sérlegan Sérpa fyrir mig og mun hann m.a bera upp Lazy-boy stól sem ég hyggst nota til að njóta hæsta tinds Íslands til fullnustu.  Helgin eftir mun víst vera Versló og eru það Eyjar þriðja árið í röð. Grunar mig að snilld síðustu tveggja ára verði rækilega toppuð því við verðum 10 saman í íbúð, aldeilis hressandi að geta skellt sér í sturtu og kælt Baukana. Það er því nóg skemmtilegt framundan auk þess sem stefnan er sett á HM í handbolta í Þýskalandi með Barðanum í Janúar......... Ich komme, Ich komme..... Ég sef vart fyrir spenningi.....

Það stóð til að skokka eins og brjálæðingur í sumar og í bjarsýni vorkomunnar stefndi ég á hálft marþon á Akureyri 16. september.  Þær áætlanir stefna rakleiðis og ósmurt upp í afturendann á mér því ég hef ekki skokkað vikum saman vegna beinhimnubólgu og aðstoð sérfræðinga (sem ekki kostaði lítið) er engu að skila.  Gaman gaman......  Ég hef í staðinn drukkið ca. einn bjór fyrir hvern þann kílómeter sem stóð til að skokka í sumar :)

Jæja, látum þetta duga í bili……. Ætli heyrist ekki næst í mér eftir tvo til þrjá mánuði :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 15:28:13 / Kári

Látum söngin óma..........

Komið út úr prófinu, gekk svona líka skínandi.  Þá er það ,,bara´´ verkefnið sem er eftir. Mér gengur ágætlega að sitja við þetta en veðrið er ekki beint að hjálpa þessa dagana og hittinn inn á Þjóðarbókhlöðu er stundum ekkert grín....

Fastir liðir eins og venjulega:

Glæpamenn þessarar borgar fá seint leið á Káranum, í gærmorgun var búið að brjóta afturrúðuuna bílstjóramegin á minni heittelskuðu Suður-Kóresku drossíu og tölvutaskana/skólataskan sem þar sat í sakleysi sínu horfin. Hún var troðfull af allskyns gögnum tengdum lokaverkefninu en fátt ef nokkuð í henni sem þesssi dópistaræfill kemur í verð, gamall vasareiknir, hleðslutæki og eitthvað svoleiðis. Sé mest eftir töskunni sjálfri sem sér ekki á eftir margra ára notkun en það var lán í óláni að gögnin sem hurfu eru sennilega að mestum hluta til finnanleg aftur á netinu. Þarna var líka líkamsræktarbók með ýmsum góðum ábendingum um hvernig á að lyfta svo ef þið sjáið helmassaðan dópistaræfil á rölti um bæinn á næstunni, þá látið mig vita :lol:

A.T.H   Ef þið segið ykkar skoðun hér að neðan þá er bannað að skamma mig fyrir að hafa skilið töskuna eftir í bílnum, löggan og fleiri eru búinn að því.   Takk fyrir.......

AMEN


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 18:53:01 / Kári

Með í utandeildarliði ??

Við erum að reyna að smala í utandeildarlið, nokkrir sálfræðiguttar og hinir og þessir okkur tengdir. Stefnir í afar skemmtilegan hóp en okkar vantar fleiri. Hefurðu áhuga.

Heyrðu í mér, kvittaðu hér eða sendu póst á karit@hi.is

íííhhaa...


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 16:10:09 / Kári

Er það bara ég ??

....eða er barnið hér í hausnum (bara einhver mynd af netinu) ekki glettilega líkt Litla-Jones ??  :-)  Allavega hef ég margoft séð hann í þessum ham..........  :lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 18:51:27 / Kári

Vúbadjúbadússípú........

Var að gera allnokkrar og löngu tímabærar breytingar á tenglasafninu.  Nokkuð af smáfólkinu er því miður hætt að vera með síður á alnetinu en önnur komin í staðinn, til dæmis Angela Mary dóttir Litla Jones og Nönnu....... Sem fyrr tek ég við ábendingum ef einhverja vantar.... ?  Einnig bætti ég við Kúbufara.

Í dag er föstudagur og klukkan er 18:34. Ef þú vilt vera minntur á það á 3 mín. fresti skaltu stilla á einhverja af hinum fjölmörgu ömurlegu íslensku útvarpsstöðvum. Fær fólkið á stöðvum eins og létt FM og FM957 borgað?? Og hvaða vitleysingur fann upp setninguna ,, ....á þessum ágæta sunnudegi´´ /  ,,.... á þessum ágæta mánudegi´´ eða hvaða dagur sem kann að vera....... Mæli með NFS þar sem fólk með heila talar, og Vefútvarpinu Gullbylgjunni þar sem engin talar, blessunarlega...

Var í prófi síðasta laugardag og ætla ekki að hafa nein orð um hvernig gekk, einkunn dettur vonandi inn í næstu viku. Hins vegar losnaði ég við að taka prófið sem ég átti að taka næsta fimmtudag. Það breytir miklu, eða ætti að geta breytt miklu hafi ég snefil af sjálfsaga (um það má deila) og byrja ég í sumarfríi á mánudaginn og verð að minnsta kosti út maí með örfáum undantekningum.  Lokaverkefnið bíður og þetta verður sprettur, það er ljóst.

AMEN


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 16:36:02 / Kári

:-) :-) :-)

Two elderly couples were enjoying friendly conversation when one of the men asked the other, "Fred, how was the memory clinic you went to last month?"
"Outstanding," Fred replied. "They taught us all the latest psychological techiniques - visualization, association - it made a huge difference for me."
"That's great! What was the name of the clinic?"

Fred went blank. He thought and thought, but couldn't remember. Then a smile broke across his face and he asked, "What do you call that red flower with the long stem and thorns?"
"You mean a rose?"
"Yes, that's it!" He turned to his wife. . ."Rose, what was the name of that clinic?"

TÆR Snilld..... og einn sem ég stal úr Freygarði

A guy goes to his eye doctor for an examination. They start talking as the doctor is examing his eyes. In the middle of their conversation, the doctor casually says, "You need to stop masturbating."

The guy replies, "Why Doc? Am I going blind?"

The doctor says, "No, but you're upsetting the other patients in the waiting room."

Léttir lund í lestrarleiðindum.............

AMEN


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 23:31:24 / Kári

Það er gott að vera vélmenni ?

Settist inn í bílinn mín í dag og eins og alltaf var NFS í gangi sem ekki hefði verið í frásögur færandi nema að röddin sem var að tala var ,,rugluð´´, þ.e hún hljómaði svona hæg og dimm eins og oft er gert þegar einhver talar sem vill ekki þekkjast, svo sem þolendur handrukkara eða gerendur í kynferðisbrotamálum.

Ég keyrði út af planinu og beið spenntur eftir að heyra um hvaða krassandi hneykslismál eða annað slíkt væri vera að ræða. En þessi dimma rödd talaði bara um einhver skipulagsmál í Kópavogi....... Jújú, þetta var Gunnar Birgisson

Þvílík rödd sem maðurinn státar af................... :lol:

AMEN


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 14:18:34 / Kári

Allt á fullu...

Litla frænka hlaut nafnið Margrét Helgadóttir, í höfuðið á mömmu (ömmu barnsins) :D

Ég mæli sterklega með nýju vef-útvarpsstöðinni Gull-byljgan, sjá á www.bylgjan.is

Þessa viku tek ég sumarfrí í vinnunni og er henni ætlað að fara í lestur fyrir próf sem er nú á laugardaginn. Enn á ég eftir tvö próf (báðir áfangar sem ég er tæknilega búinn að sitja áður - löng saga og leiðileg) og svo er það blessað verkefnið. Ég er skráður í brautskráningu 24. júní og enn er stefnan að reyna að ná þessu.  Hef verið að velta því fyrir mér undanfarna daga hvað ég eigi að gera, ljóst er að ég næ þessu ekki nema eyða öllu mínu sumarfrí í þetta. Hinn kosturinn væri þá að eiga eitthvert frí en hafa þetta enn yfir höfði sér og útskrifast í Október. Reynslan hefur kennt mér að frestanir enda alltaf á sama veg, maður lendir í sama skítnum aftur áður en maður veit af. Ég bið því elskulega lesendur mína veita mér aðhald og hjál til að drullast í gegn um þetta ....

Ég dreg mig sennilega út úr bloggheimum í bili og reyni að einhenda mér í þetta....

Fallegar hugsanir er vel þegnar :-)

Lifið heil - AMEN


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 15:12:35 / Kári

Léttur viðsnúningur...

Ég hætti ekki að hafa gaman að því að kíkja á blogg varaformanns Siðblindufélagsins sem áður fór fyrir Samfylkingunni á Akureyri en fór svo í prófkjör hjá Sjöllunum í sama bæ og náði hreint stórkostlegum árangrri.

Á þessari síðu http://oktavia.blogdrive.com/ talar greinilega heittrúaður Samfylkingarmaður og önnur eins dásömun á einum flokki er vandfundin. Sérstaklega er gaman að skoða dagsetningu á síðasta blogginu en þegar þetta er skrifað í dag vantar enn nokkra daga upp á að ár sé liðið frá færslunni.  Samt eru fjórir mánuðir liðnir frá því varaformaðurinn skipti um flokk. Þá talaði hún um að ákvörðunin ætti sér langan aðdraganda sem allir sjá að er algjört kjaftæði, pólitískar skoðanir breytast ekki svona á 8 mánuðum, sérstaklega þar sem stefna hvorugs flokks hefur neitt breyst og Oktavía heldur ekki vatni yfir Samfylkingunni fyrir tæpu ári síðan. Rótin að þessum skrípaleik er engin önnur en sú að þegar hún áttaði sig á því að nánast engin einasti Samfylkingarmaður á Akureyri var til í að styðja hana áfram fór hún í fýlu og í framhaldinu út í þessar asnalegu hefndaraðgerðir........

Ætli henni þykji ekki tímabært að taka út Ofsatrúar-Samfylkingar-bloggið sitt þegar um mánuður er til kosninga og hún er komin í annað lið ?  Liðið sem hún notaði alla sína orku hér áður fyrr í að drulla yfir...

Þetta er hreinn brandari allt saman en mesta furða hvað þetta vakti litla athygli. Engin nennir einu sinni að tuða yfir þessu nema ég og Samfylkingarfólk heima á AK er Guðs lifandi fegið. Hún stórskaðaði jú síðasta framboð en það breytir því ekki hvað það er lélegt að hún skildi ekki segja af sér sem bæjarfulltrúi...

En jæja, ég hvert ykkur til að skoða bloggið hennar, það er mesta skemmtun...

AMEN


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 05:17:02 / Kári

Mans hestur

Ég fylgist nú nokkuð vel með enska boltanum en vegna anna við gulrótarækt og pastagerð hef ég ekki getað fylgst með nú um helgina. Getur einhver góður maður sagt mér hvernig Manchester United - Sunderland fór ?? Hóst....... helvítis flensan.... AMEN

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 19:40:20 / Kári

05:29 í morgun...

... Eignuðuust Þóra og Helgi sitt annað barn, litla stelpu  :) 

» 8 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 17:46:54 / Kári

Bloggátak 2 - Dagur 7 (Sko strákinn)

Þar með lýkur áhugaverðri viku, ég stóðst bloggátak tvö enda ekki á rasssærindin bætandi að þurfa að klæðast treyju djöfulsins heilan dag. Þessi helgi sem er handan við hornið er tilhlökkunarefni, vonandi gerist eitthvað aðeins í eilífðarframkvæmdunum í Frostaskjóli, Mútter er að koma í borgina, Hanna frænka frá Kanada er stödd á klakanum, og svo sýnist mér fokhelt partý standa fyrir dyrum á laugardaginn. Enda þetta á óborganlegum brandara sem ég rakst á í Freygarði á dögunum. ,,A farmer had 3 beautiful daughters who were getting ready to go out on dates. The first beau came to the door and said, ''I'm Eddie, I'm here to pick up Betty. We're going for spaghetti, is she ready?'' "No," the farmer said. The second beau came to the door and said, ''I'm Joe, I'm here to pick up Flo to take her to the show. Is she ready to go?'' "No." The third beau came to the door and said to the farmer. ''Hello, my name is Chuck.'' The farmer shot Chuck.´´ Þeir verða ekki mikið betri en þessi........... AMEN

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 11:30:50 / Kári

Rasssærður

Rúnar, nýtt þriggja samhljóða orð handa þér. Eins og alþjóð veit tók ég út refsingu mína á þriðjdaginn og er ég enn mjög raSSSærður eftir þau ósköp. Aðeins einn maður (ónefndur vinur minn) mætti á þessa athöfn fyrir utan mig með stríðs/perra/brjálæðis-glampa í augunum. Ekki nóg með það heldur lét hann ekki nægja að nota svipuna sem ég hafði meðferðis heldur kom með sína eigin, heimagert tryllitæki. Úfff....

Þarf að segja meira? En þetta er allt í áttina og ég er farin að geta setið....

AMEN


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8